Einhverfusamtökin fta. voru stofnuð árið 1977. Í þeim eru einhverft fólk, foreldrar, aðstandendur, fagfólk og öll þau sem áhuga hafa á málefnum fólks á einhverfurófi (autism spectrum).
Starfsemi samtakanna beinist meðal annars að því að bæta þjónustu við einhverfa, standa vörð um lögbundin réttindi þeirra og stuðla að fræðslu um málefni fólks á einhverfurófi. Samtökin leggja áherslu á sýnileika með það að markmiði að geta orðið að liði þar sem þörfin á stuðningi og aðstoð er fyrir hendi. Við fylgjumst með setningu laga og reglugerða sem snerta okkar félagsmenn og gefum álit. Einnig fylgjumst við með starfi sveitarfélaga. Aðilar úr okkar röðum hafa setið í stjórnum Landssamtakanna Þroskahjálpar og ÖBÍ og reynum við að hafa áhrif þar í gegn. Samtökin eru í samvinnu við ýmis önnur hagsmunafélög til að reyna að hafa jákvæð áhrif á ýmis baráttumál samtakanna. Helstu baráttumál samtakanna hafa verið stytting biðlista eftir greiningu, búsetumál, atvinnumál og skólamál.
Einhverfusamtökin fta. halda úti heimasíðu, www.einhverfa.is og eru með reglulegan opnunartíma á skrifstofu þar sem nálgast má upplýsingar og fræðsluefni. Þar er hlustað og hægt að fá upplýsingar. Einnig er fólki vísað áfram í kerfinu, svo sem til Sjónarhóls, réttindagæslumanna fatlaðra o.s.frv. allt eftir þörfum hvers og eins.
Annar mikilvægur þáttur í starfi Einhverfusamtakanna eru umræðuhópar fyrir einhverft fólk. Við höfum reglulega staðið fyrir ráðstefnum og kynningarfundum. Samtökin fylgjast með því sem er að gerast í löndunum í kringum okkur og eru í virku norrænu samstarfi. Mikilvægt er að einhverfir og aðstandendur standi vörð um réttindi einhverfra og láti til sín taka. Ef þú ert ekki sáttur við þá þjónustu sem þú, barnið þitt eða einhverfur aðstandandi fær, hvetjum við þig til að hafa samband við okkur, hvar sem þú ert á landinu.
Hönnuður merkis: Jón Ari Helgason.