Fatlað fólk á tímamótum
Eru mannréttindi virt?
Fundur á Hvolsvelli þriðjudaginn 15. febrúar 2011 kl. 16.30- 19.00
Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Næsti fundur verður í Hvoli þriðjudaginn 15. febrúar nk. kl. 16.30 – 19.00
Efni fundar:
Ný hugmyndafræði um fötlun og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir - Fötlunarfræði HÍ
Þekkir þú réttindi þín? Hrefna K. Óskarsdóttir - ÖBÍ
Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon - formaður ÖBÍ
Notendastýrð persónuleg aðstoð kynnt ásamt fyrirhugaðri Þekkingar- og þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar.
Raddir sveitarstjórnarmanna og notenda eða mögulegra notenda
Umræður og fyrirspurnir.
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.
Mætum öll Ekkert um okkur án okkar