Nú styttist í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fer fram 24. ágúst.
Um leið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, minnum við á áheitasöfnun því samfara. Við verðum með boli með merki samtakanna á skrifstofu Einhverfusamtakanna sem hlauparar geta fengið gefins. Þessir bolir eru úr Dri-Fit efni og góðir í hlaup og ræktina.
Þessi söfnun áheita er stærsta fjáröflun Einhverfusamtakanna og því mikilvæg fyrir starfsemina.
Það er einfalt fyrir hlaupara að stofna aðgang á hlaupastyrkur.is og safna áheitum. Byrja þarf á því að skrá sig í hlaupið á marathon.is. Í skráningarferlinu er hægt að velja eitt af skráðum góðgerðafélögum en Einhverfusamtökin eru eitt þeirra, og stofnast þá viðkomandi sjálfkrafa á hlaupastyrkur.is að skráningu lokinni. Einnig geta skráðir hlauparar farið inn á hlaupastyrkur.is og stofnað aðgang í örfáum einföldum skrefum.