Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 24. ágúst

Nú styttist í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Hlauparar geta sótt boli á skrifstofu Einhverfusamtakanna að Háaleitisbraut 13, 2.hæð, á miðvikudögum og föstudögum fram að hlaupi. Ef fólk kemst ekki á þeim tíma þá um að gera að hafa samband og við finnum lausn.  Hlauparar utan af landi geta fengið boli senda til sín, sendið okkur póst á einhverfa@einhverfa.is með upplýsingum um stærð og heimilisfang.

Við stefnum á að vera með hvatningarstöð á Suðurgötunni á meðan að hlauparar fara framhjá. Þeir sem hafa áhuga á að vera með okkur þar fá boli merkta samtökunum. Sendið okkur póst á einhverfa@einhverfa.is ef þið hafið áhuga á að taka þátt.