Á síðunni http://hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/felag/700179-0289 eru þeir skráðir sem hlaupa fyrir Einhverfusamtökin. Þar getur almenningur farið inn, skoðað hlaupara og heitið á þá með kreditkorti eða með því að senda sms skeyti. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða. Endilega komið þessum upplýsingum áfram til vina og ættingja. Þið sem ætlið að taka þátt í hlaupinu, munið að skrá ykkur þarna inn ef þið hafið áhuga á að styrkja félagið.