28.12.2023
Sigrún Birgisdóttir
2. apríl er alþjóðadagur einhverfu og munu Einhverfusamtökin efna til listviðburðar af því tilefni.
Leitum við að einhverfu fólki, 18 ára og eldri, í listum og skapandi greinum. Ætlunin er að kynna listafólk og verk þeirra á vefmiðlum í mars og efna svo til sýningar í Hamrinum í Hafnarfirði fyrstu eða aðra helgina í apríl.
Yfirskrift verkefnisins „Marglitur mars“
Hugmyndin að baki verkefninu byggir á fjölbreytileika einhverfurófsins og þeirri margbreytilegu listsköpun og frumleika sem þar er að finna. Því verður leitast við að ná til fjölbreytts hóps listafólks og skapandi einstaklinga á einhverfurófi og leyfa verkum þeirra að tala.
Í þátttökunni felst að:
- leggja til verk og/eða koma fram á listsýningunni í apríl.
- leyfa okkur að kynna þig og list þína í máli og myndum í marsmánuði, í samstarfi við kynningarteymi okkar.
Einhverfusamtökin munu kosta gerð kynningarefnis og aðstoða við uppsetningu sýningarinnar.
Gerum við ráð fyrir að 20-25 manns geti tekið þátt og munum við horfa í fjölbreytileikann við val á þátttakendum. Þeir sem hafa ekki tekið þátt áður verða í forgangi.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt geta sent tölvupóst á netfangið einhverfa@einhverfa.is og munum við hafa samband.