Einhverfusamtökin hafa fengið skráningu sem félag til almannaheilla og eru komin á almannaheilaskrá Ríkisskattstjóra. Veitir þessi skráning skattfrádrátt fyrir einstaklinga og fyrirtæki af styrkjum til samtakanna. Höfum við sett upp hlekki á heimasíðu samtakanna þar sem fólk getur skráð sig fyrir ákveðinni upphæð eða föstum mánaðarlegum greiðslum til að styrkja samtökin.
Rekstur Einhverfusamtakanna er að stærstum hluta fjármagnaður með styrkjum og þökkum við kærlega fyrir öll framlög.