Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra tók í gær við áskorun þúsunda einstaklinga til stjórnvalda þess efnis að fella sálfræðiþjónustu nú þegar undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands. Átta félagasamtök, hrintu af stað undirskriftasöfnun um miðjan nóvember 2016 og var lokað fyrir söfnunina um miðjan janúar 2017.....
PEERS®námskeið í félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungmenni með einhverfu, ADHD, kvíða, þunglyndi og/eða aðra félagslega erfiðleika á aldrinum 11 – 18 ára.......
Einhverfusamtökin senda minningarkort fyrir þá sem þess óska. Hægt er að hafa samband við Sigrúnu Birgisdóttur í síma: 562-1590 eða 897-2682, eða senda póst á netfangið einhverfa@einhverfa.is
Foreldrar barna á einhverfurófi í leikskólum og grunnskólum/framhaldsskólum munu hittast miðvikudagskvöldið 1. febrúar klukkan 20:00 að Háaleitisbraut 13, í fundarherbergi á 2. hæð.
Foreldrar barna á einhverfurófi í Reykjavík munu hittast miðvikudagskvöldið 4. janúar, klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, í fundarherbergi á 2. hæð.....